Bæjarstjóri Ölfuss

Elliði Vignisson er bæjarstjóri Ölfuss.Elliði Vignisson

Elliði er fæddur árið 1969 og starfaði áður sem bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Auk þess sat Elliði í bæjarstjórn Vestmannaeyja og ýmsum nefndum og ráðum hjá Vestmannaeyjabæ frá árinu 2003.  Fyrir það starfaði Elliði m.a. við kennslu og sálfræðistörf auk þess að sitja í stjórnum fyrirtækja og stofnana.

Elliði  lauk MA prófi í sálfræði frá University of Copenhagen árið 1998 auk kennslufræði til kennsluréttinda frá HÍ árið 1996.  Auk þess hefur Elliði lagt stund á nám í opinberri stjórnsýslu við HÍ.

Elliði er kvæntur Berthu I. Johansen íslenskufræðingi og framhaldsskólakennara og saman eiga þau tvö börn, Nökkva Dan stærðfræðing og Bjarteyju Bríeti háskólanema.

Netfang Elliða er ellidi@olfus.is

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?