Vinnuskóli

Yfir sumartímann er rekinn vinnuskóli fyrir unglinga.  Markmið vinnuskólans er að bjóða uppá hollt og uppbyggjandi sumarstarf fyrir unglinga.  Boðið er uppá fjölbreytt störf á mismunandi vinnusvæðum.  Unglingarnir fá fræðslu um notkun og meðferð algengra verkfæra ásamt fræðslu um náttúru og umhverfi.

Með skráningu í vinnuskólann er litið svo á að að unglingur sé að sýna áhuga á að taka þátt í starfi skólans.  Honum ber að vinna þau verkefni sem honum eru falin án þess að stöðugt þurfi að ganga eftir því að hann haldi sig að verki. 

Reglur Vinnuskóla Ölfuss

X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?