Umhverfis Suðurland

Umhverfis SuðurlandÍ september á hverju ári fer fram árvekniátakið Plastlaus september og plast því þema þess mánaðar.  Átakinu er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um ofgnótt og skaðsemi plasts í umhverfinu og benda á leiðir til að draga úr notkun á einnota plasti. Hver Íslendingur skilur eftir sig um 40 kíló af úrgangi umbúðarplasts á ári. Við á Suðurlandi viljum vera áberandi hluti af átakinu í ár og vonum að íbúar, sveitarfélögin og fyrirtæki taki vel í það með virkri þátttöku.

Umhverfis Suðurland er áhersluverkefni og sameiginlegt átak sveitarfélaganna fimmtán á Suðurlandi með Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga. Það gengur út á öflugt árvekni- og hreinsunarátak þar sem íbúar, fyrirtæki og sveitarfélög í landshlutanum eru hvött til enn meiri flokkunar og endurvinnslu en nú er, auk þess sem ráðist verður í almenna tiltekt í landshlutanum í tilefni af 100 ára fullveldisafmæli Íslands.

Átakið mun standa fram á næsta ár með ýmsum viðburðum og og ákveðnu þema fyrir hvern mánuð sem verður kynnt nánar þegar nær dregur.

Umhverfis Suðurland er Áhersluverkefni og hluti af Sóknaráætlun Suðurlands.  Verkefnið er styrkt af uppbyggingarsjóðum sem taka mið af áherslum sóknaráætlunar í hverjum landshluta.

Heimasíða Umhverfis Suðurland.

 
X Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?